Gérard Bertrand An 940 Pinot Noir 750ml - 2023
Upplýsingar
Gerard Bertrand, einn athyglisverðasti víngerðarmaður Frakka um þessar mundir, hefur á undanförnum árum verið að færa vínrækt sína í Languedoc yfir í lífeflda og lífrænt vottaða framleiðslu.
Fyrstu ummerki langue d'oc ná aftur til um 940 e.Kr., í bókmenntatextum eins og ljóðinu "La passion de Clermont". Það varð síðar oksítanskt tungumál, hluti af evrópskri menningu sem Trúbadúrhreyfingin miðlaði á miðöldum.
Í nefi er ilmur af þroskuðum kirsuberjum, villtum hindberjum og kryddi, í bragði svipað með smá ristaðri eik sem eykur á dýptina, mjúk fylling og fínasta eftirbragð. Vínið er ungt en samt mjúkt, fágað og hentar vel með léttum mat. Prófið að kæla það í a.m.k. 15 mínútur í ísskápnum áður en þið smakkið það.